Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum þann 12. desember að leggja fram til kynningar drög að reglum um afnot af bæjarlandi Búðardals vegna skilta. Með því gefst íbúum og öðrum hagsmunaaðilum kostur á að koma með ábendingar eða gera athugasemdir við drögin.
Athugasemdum eða ábendingum skal skilað skriflega á skrifstofu skipulagsfulltrúa, í síðasta lagi 28. janúar 2020, Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á netfangið skipulag @dalir.is merkt „Reglur um skilti“.
Sjá hér: Drög að reglum um afnot af bæjarlandi Búðardals vegna skilta