Firmakeppni og reiðsýning

DalabyggðFréttir

Milli 50 og 60 manns tóku þátt í firmakeppni Hesteigendafélags Búðardals á sumardaginn fyrsta.
Börn á reiðnámskeiðum hjá Glað voru síðan með glæsilega reiðsýningu.
Skjöldur Orri Skjaldarson stýrði keppninni. Dómarar voru Freyja Ólafsdóttir og Herdís Erna Gunnarsdóttir. Í nefndinni voru Gunnar Örn Svavarsson, Skjöldur Orri Skjaldarson, Svala Svavarsdóttir og Þórður Ingólfsson.
Fjöldi fyrirtækja og annara velunnara styrktu framtakið og eiga þakkir skyldar.
Í pollaflokki voru 14 keppendur og allir unnu !
Í barnaflokki voru 13 keppendur, efstar voru:

1.

Þóranna Hlíf Gilbertsdóttir

Baldur B. frá Búðardal

Rjómabúið Erpsstöðum

2.

Elísa Katrín Guðmundsdóttir

Birta frá Sælingsdal

Gnýr frá Svarfhóli

3.

Alda Karen Antonsdóttir

Fumi frá Engihlíð

Dalafrakt ehf.
Í unglingaflokki voru 3 keppendur sem röðuðust eftirfarandi.

1.

Signý H. Friðjónsdóttir

Lýsingur frá Kílhrauni

Stimpill frá Vatni

2.

Hlynur S. Sæmundsson

Skjóni frá Stapa

Samkaup

3.

Aldís Guðmundsdóttir

Gráskjóna frá Sælingsdal

Stéttarfélag Vesturlands
Í kvennaflokki voru 15 keppendur, efstar voru:

1.

Svanborg Þ. Einarsdóttir

Emma frá Gillastöðum

Arion banki

2.

Drífa Friðgeirsdóttir

Tígulstjarna frá Bakka

Gilbert Elísson

3.

Málfríður Mjöll Finnsdóttir

Sprettur frá Tjarnarlandi

Spágilsstaðir
Í karlaflokki voru 7 keppendur, efstir voru:

1.

Sigurður Hrafn Jökulsson

Gloría frá Vatni

Flathólmi-Bryndís K.

2.

Valberg Sigfússon

Vingull frá Hestheimum

Rafsel

3.

Unnsteinn Kr. Hermannsson

Sóldís frá Leiðólfsstöðum

Veiðifélag Laxdæla
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Glaðs
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei