Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands og hægt er að sækja um styrki til menningarverkefna.
Í tilefni þess stendur menningarfulltrúi Vesturlands hjá SSV fyrir fjarkynningu miðvikudaginn 28. október kl. 17:30 um Uppbyggingarsjóð og menningarverkefni, hvernig á að bera sig að og svarar spurningum þátttakenda á Facebook síðu SSV.
Viðburðinn má finna með því að smella HÉR. Fjarkynningin verður aðgengileg á síðunni eftir að streyminu líkur.
Jafnframt er hægt að bóka viðtal við menningarfulltrúa og fá ráðgjöf vegna menningarverkefna en að sama skapi er hægt að fá ráðgjöf vegna atvinnu- og nýsköpunarverkefna hjá atvinnuráðgjöfum SSV. Nánari upplýsingar um það er að finna á heimasíðu SSV eða með því að smella HÉR.
Minnt er á að skilafrestur umsókna í Uppbyggingarsjóð er 17. nóvember n.k.