Flugeldasala og brennur

DalabyggðFréttir

Flugeldasala Björgunarsveitarinnar Óskar er við húsnæði sveitarinnar við Vesturbraut dagana 28. desember til 31. desember.
Þrjár brennur verða í sveitarfélaginu um ármótin. Í Búðardal verður kveikt í brennunni á gamla fótboltavellinum kl. 20:30 og flugeldasýning í kjölfarið. Um miðnætti verður síðan kveikt í brennum við Árblik í Miðdölum og ap Þverfelli í Saurbæ.
Opnunartímar flugeldasölu Óskar eru:

Miðvikudaginn 28. desember 14 – 18
Fimmtudaginn 29. desember 14 – 20
Föstudaginn 30. desember 14 – 22
Laugardaginn 31. desember 10 – 15
Fyrir á sem ekki hafa áhuga á flugeldakaupum, en vilja styrkja björgunarsveitina er reikninginn sveitarinnar 0312-13-300062 og kennitala 620684-0909. Sími er 434 1422.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei