Framtíð félagsheimilanna – tveimur fundum lokið

DalabyggðFréttir

Menningarmálanefnd Dalabyggðar hefur boðað til hugarflugsfunda um framtíð félagsheimilanna í sveitarfélaginu (sjá dagsetningar og tíma hér fyrir neðan).

Fyrsti fundur fór fram í Árbliki 2. nóvember sl. og annar fundur var haldinn í Tjarnarlundi í gær, 4. nóvember.

Menningarmálanefnd þakkar fundargestum fyrir komuna og mun vinna samantekt frá fundunum, sem og næstu fundum, sem verður tekin fyrir á fundi nefndarinnar síðar í nóvember.

Þeim sem ekki komust á fundinn í gær er velkomið að senda hugmyndir og efni á Jóhönnu, verkefnastjóra hjá Dalabyggð á netfangið johanna@dalir.is

Við minnum á næstu fundi:

    • 2. nóvember í Árbliki kl.20:00 (lokið)
    • 4. nóvember í Tjarnarlundi kl.20:00 (lokið)
    • 9. nóvember á Staðarfelli kl.20:00
    • 11. nóvember í Dalabúð kl.20:00

Allir velkomnir! 

Athugið að á fundunum er grímuskylda.

Á dagskrá verður m.a. kynning á samatekt um hvert félagsheimili, ávarp frá menningarfulltrúa SSV og hugarflugsvinna gesta.

Niðurstöður fundanna verða teknar saman og sendar byggðarráði Dalabyggðar til upplýsingar.

Sl. vor voru haldnir fjarfundir þar sem farið var yfir rekstur og notkun hvers félagsheimilis. Upplýsingar frá fundunum og upptökur má sjá hér fyrir neðan:

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei