Fundaröð ÖBÍ

DalabyggðFréttir

Fundaröð Öryrkjabandalags Íslands. Fatlað fólk á tímamótum. Eru mannréttindi virt?
Fundur fyrir Dali, Strandir og Reykhólasveit verður á Reykhólum miðvikudaginn 8. júní 2011
Yfirfærsla á þjónustu fyrir fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga fór fram um síðustu áramót. Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) heldur af því tilefni fræðslu- og umræðufundi víðs vegar um landið. Fundur verður 8. júní í Reykhólaskóla í Reykhólahreppi kl. 15:00-17:30.
Íbúar í nærliggjandi sveitarfélögum eru hvattir til að mæta og kynna sér hvað er að gerast í þessum málum.
Fatlað fólk, aðstandendur, starfsfólk og stjórnendur sem vinna að málefnum fatlaðs fólks og aðrir sem áhuga hafa á málefninu eru velkomnir.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei