Fundur: Eru tækifæri í smávirkjunum á Vesturlandi ?

DalabyggðFréttir

Miðvikudaginn 3. febrúar kl.09:00 standa Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fyrir opnum Teams-fundi um smávirkjanir á Vesturlandi.

Athugið að það þarf að skrá sig á fundinn. Skráningu má nálgast hér: Skrá mig á fund

Á fundinum munu þeir Arnar Bergþórsson og Arnar Már Björgvinsson frá fyrirtækinu Arnarlæk kynna skýrslu sem þeir unnu um smávirkjanir á Vesturlandi.
Í skýrslunni er farið yfir frumúttekt á valkostum fyrir smávirkjanir á Vesturland, en alls voru 70 valkostir skoðaðir.
Að auki er í skýrslunni fjallað almennt um ferlið við uppbygginu smávirkjana.

Skýrsluna má nálgst hér: Smávirkjanir á Vesturlandi-frumúttekt valkosta

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei