Næsti fundur í ráðgjafaráðinu verður haldinn föstudaginn 21. október 2022, klukkan 10.00. Fundurinn er haldinn í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar, Miðbraut 11.
Á síðasta fundi voru kynntar áætlanir um fyrirhugað verkefni, sem kallast „Aðgengi skóga í Dalabyggð – Brekkuskógur og Laxaborg“ og styrkumsóknir til að fjármagna það. Einnig var fjallað um mögulega byggingu og rekstur á gróðurhúsum fyrir trjáplöntuframleiðslu í Dalabyggð. Þá voru einnig ræddir fjölbreyttir möguleikar til útvistar í Dalabyggð og tækifæri í nýsköpun tengdum þeim. Á næsta fundi verður farið yfir fleiri hugmyndir að nýsköpunarverkefnum.
Eftirfarandi aðilar eru nú þegar skráðir meðlimir í ráðinu en eftir sem áður er það opið öllum og eru áhugasamir hvattir til að mæta á fundi ráðsins og/eða hafa samband við Jakob K. Kristjánsson í gegnum netfangið jakob.heima@gmail.com.
Nýsköpunarsetur Dalabyggðar – ráðgjafaráð
Jakob K. Kristjánsson, jakob.heima@gmail.com Sími 664-7900
Franz Jezorski, franz@jezorski.is Sími 893-484
Sigurbjörn Einarsson, sigbj28@gmail.com
Garðar Freyr Vilhjálmsson, gardarv@dalir.is
Linda Guðmundsdóttir linda@ssv.is s. 780-6697
María G. Líndal maria.glindal@simnet.is