Uppbyggingarsjóður Vesturlands – opið fyrir umsóknir

DalabyggðFréttir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2022, úthlutun fer fram í janúar 2023.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

Í þessari úthlutun eru:

  • Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir til menningarmála
  • Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarmála

Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér: Uppbyggingarsjóður Vesturlands

Kynnið ykkur vel reglur og viðmið varðandi styrkveitingar: Reglur og viðmið

Aðstoð við umsóknir veita

Atvinnu- og nýsköpunarverkefni:
Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is 892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is 898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is 895-6707

Menningarverkefni:
Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is 698-8503

Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2022

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei