Furðuleikar á Ströndum

DalabyggðFréttir

Sauðfjársetur á Ströndum heldur sína árlegu Furðuleika sunnudaginn 29. júní og hefjast þeir kl. 13. Leikarnir fara fram á Sævangsvelli við Steingrímsfjörð og eru lokapunkturinn á bæjarhátíðinni Hamingjudögum á Hólmavík. Þetta er í ellefta skipti sem Furðuleikarnir fara fram.
Á Furðuleikum er keppt í ýmsum skringilegum íþróttagreinum sem eiga það sameiginlegt að vera afbragðs skemmtun og hafa ekki hafa hlotið viðurkenningu Alþjóða Ólympíunefndarinnar.
Meðal þess sem fólk getur prófað á Furðuleikum er öskurkeppni, kvennahlaup (þar sem karlarnir hlaupa um þrautabraut með konur sínar á bakinu), ruslatínsla, girðingastaurakast, farsímakast og fleira. Þá má einnig nefna sýningargreinina trjónufótbolta sem hefur notið gífurlegra vinsælda undanfarin ár.
Í kaffistofu Sauðfjársetursins verður geysilega veglegt hlaðborð á boðstólum að vanda. Sögusýningin Sauðfé í sögu þjóðar verður opin. Einnig er sýning á listasviðinu sem ber yfirskriftina Álagablettir. Í kaffistofunni er sýningin Allt á kafi – snjóaveturinn 1995. Og í sérsýningarherbergi safnsins er sýningin Hagleiksmaðurinn Þorsteinn Magnússon.
Aðgangur að öllum sýningum er ókeypis í tilefni dagsins og sama gildir um furðuleikana sjálfa.
Alls engar kröfur eru gerðar til keppenda um færni, þol eða fyrri reynslu í íþróttum og yfirleitt er lítið um verðlaun önnur en heiðurinn af því að sigra í keppnisgreinum og ánægjan af því að taka þátt. Þó er að venju farsími í verðlaun í farsímakastinu og er það glæsilegur snjallsími, Samsung Galaxy Ace3, sem Síminn gefur. Skráning í keppnisgreinar fer fram á staðnum.
Ef þið viljið fá nánari upplýsingar er ykkur velkomið að hafa samband við framkvæmdastjóra Sauðfjárseturs á Ströndum, Ester Sigfúsdóttur í síma 451 3324 / 823 3324 eða á netfanginu saudfjarsetur@strandir.is

Sauðfjársetur á Ströndum

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei