Guðþjónustur í Dalabyggð yfir jól og áramót

DalabyggðFréttir

Guðþjónustur verða Breiðabólstaðar-, Snókdals-, Kvennabrekku-, Hjarðarholts-, Hvamms-, Staðarfells-, Skarðs- og Staðarhólskirkjum yfir jól og áramót. Auk þess verða helgistundir á hjúkrunarheimilunum Fellsenda og Silfurtúni.

Aðfangadagur 24. desember

Fellsendi kl. 14
Hátíðarhelgistund verður á Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Miðdölum á aðfangadag jóla kl. 14. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir.
Hjarðarholtskirkja kl. 18
Hátíðarguðsþjónusta verður í Hjarðarholtskirkju í Laxárdal kl. 18 á aðfangadag. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir jólasönginn. Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson og meðhjálpari Vivi Kristóberts. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir.

Jóladagur 25. desember

Silfurtún kl. 14
Hátíðarhelgistund verður á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni í Búðardal kl. 14 á jóladag. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir.
Staðarfellskirkja kl. 17.
Hátíðarguðsþjónusta verður í Staðarfellskirkju á Fellsströnd kl. 17 á jóladag. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir jólasönginn. Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson og meðhjálpari Sveinn Gestsson. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir.

Annar í jólum 26. desember

Hvammskirkja kl. 14
Hátíðarguðsþjónusta verður á annan dag jóla í Hvammskirkju í Hvammssveit kl. 14. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir jólasöng. Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson og meðhjálpari Jón Egill Jóhannsson. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir
Breiðabólstaðarkirkja kl. 14
Guðþjónusta verður á annan dag jóla í Breiðabólstaðarkirkju á Skógarströnd kl. 14. Sóknarprestur er sr. Gunnar Eiríkur Hauksson.
Staðarhólskirkja kl. 15
Guðþjónusta verður í Staðarhólskirkju í Saurbæ kl. 15 á annan dag jóla. Kirkjukór Reykhólaprestakalls syngur. Undirleikari og kórstjórnandi er Viðar Guðmundsson. Sóknarprestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir.
Skarðskirkja kl. 17
Guðþjónusta verður í Skarðskirkju á Skarðsströnd kl. 17 á annan dag jóla. Kirkjukór Reykhólaprestakalls syngur. Undirleikari og kórstjórnandi er Viðar Guðmundsson. Sóknarprestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir.
Kvennabrekkukirkja kl. 20
Á annan í jólum verður kertamessa í Kvennabrekkukirkju í Miðdölum kl. 20. Kirkjukór Dalaprestakalls leiðir jólasönginn. Organisti er Halldór Þorgils Þórðarson og meðhjálpari Guðmundur Pálmason. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir.

Gamlársdagur 31. desember

Snókdalskirkja kl. 14
Áramótamessa verður í Snókdalskirkju í Miðdölum kl. 14 á gamlársdagur. Sóknarprestur er sr. Anna Eiríksdóttir.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei