Heimsóknarbann á Silfurtúni

DalabyggðFréttir

Áríðandi tilkynning til íbúa, ættingja og starfsfólks Silfurtúns vegna sýkingahættu af völdum kórónaveirunnar (COVID-19) á Íslandi.

Stjórn Silfurtúns hefur tekið þá ákvörðun að loka hjúkrunarheimilinu fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með mánudeginum 9. mars 2020 þar til annað verður formlega tilkynnt. Er þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnarlækni og landlækni eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir. Silfurtún er hér að fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðarsveit Almannavarna Íslands.

Heilsa og velferð íbúanna þarf alltaf að vera í forgangi.

Nú er staðfest að smit vegna kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Silfurtúns eru flestir aldraðir og / eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilisins veikist af kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun, en þetta er gert með velferð íbúanna í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning.

Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki. Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð allra annarra gesta, en nauðsynlegs starfsfólks á vakt, takmörkuð inn á Silfurtún og hafa verið gerðar sérstakar reglur um það. Svo sem vörumóttöku, komu iðnaðarmanna og annara sem þurfa að koma inn á heimilið.

Samskiptaaðilar Silfurtúns eru:

Ína Rúna Þorleifsdóttir, sími 899 9220, netfang inar@dalir.is og

Erla Guðrún Guðbjartsdóttir, sími 861 1206.

Einnig er mikilvægt að þið kynnið ykkur upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu málar, en þær geta breyst frá degi til dags.

Stjórn Silfurtúns

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei