Hér njótum við hlunninda

DalabyggðFréttir

Hér njótum við hlunninda“ er staðhæft í tillögu að svæðisskipulagi Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar sem birt hefur verið á verkefnisvefnum www.samtakamattur.is.
Í tillögunni er sett fram sameiginleg stefna sveitarfélaganna um eflingu atvinnulífs og byggðar með áherslu á nýtingu sérkenna og auðlinda svæðisins.
Svæðisskipulagstillagan verður kynnt á opnum fundum
í sveitarfélögunum þremur á næstunni
Dalabúð, þriðjudaginn 10. október, kl. 20:00-21:30
Reykhólaskóli miðvikudaginn 11. október, kl. 17:00-18:30
Félagsheimili Hólmavíkur fimmtudaginn 12. október, kl. 17:00-18:30
Íbúar sveitarfélaganna og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta.

Hægt er að senda inn ábendingar við tillöguna til 28. október 2017. Þær skulu stílaðar á:
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar,
b.t. formanns – Ingibjargar Emilsdóttur, skrifstofu Strandabyggðar,
Höfðagötu 3,
510 Hólmavík.

Einnig má senda ábendingar með tölvupósti til ingaemils@strandabyggd.is
Svæðisskipulagsnefnd
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei