Íbúakönnun um húsnæðismál

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar óskar eftir þátttöku íbúa í könnun er varðar húsnæðismál, sem innlegg í húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.
Könnunin er rafræn, en einnig er hægt að nálgast hana í pappírsformi á skrifstofu sveitarfélagsins og fylla hana út þar. Hægt er að svara einu sinni úr hverri tölvu.
Slóðina má finna neðst í fréttinni og undir flýtileiðir.
Samhliða henni verður einnig lögð fram könnun til stærri fyrirtækja og stofnana í sveitarfélaginu til að kanna mögulegar þarfir þeirra fyrir íbúðarhúsnæði.
Íbúakönnun um húsnæðismál
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei