Hjúkrunarforstjóri

DalabyggðFréttir

Starf hjúkrunarforstjóra Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal er laust til umsóknar.
Umsækjendur skulu hafa háskólapróf í hjúkrunarfræði. Nám og/eða reynsla í stjórnun er kostur.
Ráðið verður í starfið frá 1. september 2012. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið sveitarstjori@dalir.is eða á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Pálsson sveitarstjóri í síma 430 4700.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei