Hundeigendum í Búðardal ber að skrá hunda sína og greiða 7.000 kr í skráningargjald. Eftir það er 5.000 kr árgjald með gjalddaga 1. mars og eindaga 1. apríl.
Hundahald í Búðardal sætir nokkrum takmörkunum samanber samþykkt um hundahald í Dalabyggð nr. 26/2003 og gjaldskrá fyrir hundahald í Dalabyggð frá 16. desember 2014.
Eigendum hunda í Búðardal ber skylda til að skrá hunda sína á skrifstofu Dalabyggðar og greiða 7.000 kr. skráningargjald. Í því gjaldi er innifalin örmerking, skráning, merking, ábyrgðartrygging og hundahreinsun.
Eftir það er innheimt árlega 5.000 kr gjald fyrir hvern skráðan hund. Í árlegu gjaldi er innifalin ábyrgðartrygging og hundahreinsun. Í innskráningargjaldi er innifalið árgjald fyrir það ár sem hundurinn er skráður.
Gjalddagi er 1. mars og eindagi 1. apríl. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Hafi leyfi ekki verið greitt á eindaga fellur það úr gildi. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi. Við afskráningu dýrs ber að endurgreiða árlegt gjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.
Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa, en heimilt er að hafa þá í taumi úti við, í fylgd með manni, sem hefur fullt vald yfir þeim. Hundaeigendum er skylt að sjá svo um, að hundar raski ekki ró manna eða verði mönnum til óþæginda. Skylt er leyfishafa að fjarlægja saur eftir hundinn. Þá er þeim skylt að láta hreinsa hunda sína einu sinni á ári.
Hundar sem ganga lausir á almannafæri verða handsamaðir. Við afhendingu handsamaðs dýrs skal innheimta handsömunargjald. Við fyrstu afhendingu 7.500 kr, við aðra afhendingu (innan tveggja mánaða) 12.000 kr og við þriðju afhendingu (innan tveggja mánaða) 22.500 kr. Að auki skal greiða þann kostnað sem leggst á vegna dvalar eða geymslu viðkomandi dýrs. Óskráð dýr má ekki afhenda fyrr en að lokinni skráningu og greiðslu skráningargjalds og annars áfallins kostnaðar. Við ítrekað brot skal hundinum lógað.
Eigendur blindra- og björgunarhunda eiga rétt á niðurfellingu leyfisgjalds enda leggi þeir fram skilríki um að hundarnir séu notaðir í þeim tilgangi. Þeir eru hins vegar skráningarskyldir og þarf að greiða af þeim skráningargjald.