Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum skv. lögum nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Umsóknir um húsaleigubætur þurfa að berast skrifstofu Dalabyggðar fyrir 18. janúar 2016. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar.Upplýsingar um húsaleigubætur og umsóknarblöð eru á heimasíðu Dalabyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins.
Með umsókn skulu fylgja frumrit þinglýsts húsaleigusamnings, íbúavottorð frá þjóðskrá, staðfest afrit skattframtals síðasta árs, launaseðlar þeirra er búa í íbúðinni fyrir síðustu þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald og staðfesting skóla um nám barna.