Húsaleigubætur 2016

DalabyggðFréttir

Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum skv. lögum nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Umsóknir um húsaleigubætur þurfa að berast skrifstofu Dalabyggðar fyrir 18. janúar 2016. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar.
Upplýsingar um húsaleigubætur og umsóknarblöð eru á heimasíðu Dalabyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins.
Með umsókn skulu fylgja frumrit þinglýsts húsaleigusamnings, íbúavottorð frá þjóðskrá, staðfest afrit skattframtals síðasta árs, launaseðlar þeirra er búa í íbúðinni fyrir síðustu þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald og staðfesting skóla um nám barna.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei