Inflúensubólusetning Búðardal og Reykhólum

DalabyggðFréttir

Bólusetning gegn árlegri inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvunum í Búðardal og á Reykhólum.

Bóluefnið inniheldur vörn gegn inflúensu A(H1N1), A(H3N2) og tveimur stofnum af inflúensu B.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.
  • Þungaðar konur.

Ofangreindum forgangshópum stendur bóluefni til boða sér að kostnaðarlausu en hvort greiða þarf komugjald á heilsugæslustöð fer eftir stöðu hvers og eins í greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands.

Bólusetning gegn inflúensu veitir allt að 60–70% vörn gegn sjúkdómnum. Jafnvel þótt bólusettur einstaklingur fái inflúensu eru allar líkur á því að sjúkdómurinn verði vægari en ef hann væri óbólusettur.

Nánari upplýsingar er að finna á vef landlæknisembættisins www.landlaeknir.is/

Boðið er uppá eftirfarandi daga vegna bólusetninga en einnig er hægt að fá tíma á öðrum dagsetningum eftir aðstæðum:

Búðardalur – þriðjudagur 20. og föstudagur 23. október

Reykhólar – fimmtudagur 22. október

Ætlast er til að fólk bóki tíma fyrirfram svo hægt sé að virða fjarlægðarmörk milli manna og einnig viljum við minna á grímuskyldu hjá HVE.

Tímabókanir eru í síma 432 1450 (Búðardalur) eða 432 1460 (Reykhólar).

– Starfsfólk HVE-Búðardal / Reykhólum

 

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei