Íslandsmeistaramótið í hrútadómum 2019

DalabyggðFréttir

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 19. ágúst og hefst kl. 14 í Sævangi við Steingrímsfjörð.

 

Hrútadómarnir fara þannig fram að ráðunautur fer fyrir dómnefnd  sem metur fjóra hrúta með nútíma tækjum og tólum og raðar þeim í gæðaröð. Síðan reyna keppendur sig við matið á hrútunum með hendur og hyggjuvit að vopni og reyna að komast að sömu niðurstöðu og dómararnir. Þeir óvönu láta duga að raða hrútunum í sæti frá eitt til fjögur og færa rök fyrir máli sínu. Þeir vönu gefa hins vegar hrútunum stig fyrir einstaka þætti og fara þá eftir stigakerfi sem sauðfjárbændur þekkja. Veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurvegara í báðum flokkum.

 

Að venju verður kjötsúpa á boðstólum og kaffihlaðborð allan daginn. Einnig er happdrætti og eru líflömb í vinning. Kostar miðinn 800 kr. og geta þeir sem komast ekki á staðinn keypt sér miða í gegnum Facebook síðu Sauðfjársetursins eða hjá Ester í síma 693 3474.

 

Á síðasta ári sigraði í flokki vanra Ragnar Bragason á Heydalsá við Steingrímsfjörð, í öðru sæti var Elvar Stefánsson í Bolungarvík og þriðji sæti varð Guðmundur Gunnarsson á Kjarlaksvöllum í Dölum. Sigurvegarinn í flokki vanra fær verðlaunagripinn Horft til himins til varðveislu í eitt ár.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei