Jólatré sveitarfélagsins verður eins og fyrri ár staðsett við Auðarskóla. Kveikt verður á ljósunum föstudaginn 29. nóvember og verður dagskráin í ár með örlítið breyttu sniði.
Kl. 17 verður opinn skátafundur í Dalabúð þar sem boðið verður upp á kakó, mandarínur, kökur, söng og skemmtun. Síðan verður farið út, kveikt á ljósunum, sungið og dansað.
Allir eru velkomnir.