Jólatré við Dalabúð Dalabyggð 4. desember, 2013Fréttir Þriðjudaginn 10. desember kl. 17:30 verður kveikt á ljósum jólatrésins við Dalabúð, á sama stað og í fyrra. Búist er við komu jólasveina á svæðið. Að venju verður dansað og sungið. Boðið verður uppá heitt súkkulaði með rjóma og piparkökur í umsjón Vorboðans. Var efni síðunnar hjálplegt? JáNei