Umhverfis- og skipulagsnefnd Dalabyggðar boðar til fundar með íbúum í Auðarstofu (nýsköpunarsetrið í Stjórnsýsluhúsinu) miðvikudaginn 2. desember kl. 18.
Stór hluti af stefnumótun sveitarfélaga er í gegnum skipulagsgerð. Íbúum gefst á þessum fundi tækifæri til að ræða málin með nefndinni og koma á framfæri skoðunum sínum og hugmyndum.
Vindorku- og skógræktarverkefni hafa verið og verða fyrirferðamikil og verður sérstök umræða um þau mál.
Heitt á könnunni – öll velkomin!
