Katrín Kristjánsdóttir hefur verið ráðin skólastjóri Auðarskóla frá og með 1. ágúst næstkomandi með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.
Katrín lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirðri árið 1981 og kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 2005.
Katrín hefur mikla þekkinu á skólastarfi og hefur kennt m. a. í Hafnarfirði og á Borðeyri.
Katrín hefur kennt við Auðarskóla síðastliðin tvö ár með góðum árangri og þekkir því skólann, starfsfólk og nemendur vel.
Það er mikið gleðiefni að fá Katrínu með sína farsælu reynslu til að stýra skólastarfi í Dölum og er henni óskað velfarnaðar í starfi.
