Á næstunni munu nokkrar verslanir Nettó og Samkaupa verða opnar á milli klukkan 9 og 10 fyrir þá sem eru í áhættu vegna smits af kórónuveirunni þ.e. eldri borgarar og þá sem eru með undirliggjandi sjúkdóma eða veikari fyrir smiti vegna heilsufars.
Þetta á einnig við um Kjörbúðina í Búðardal.
Verslunin er að aðlaga sig að ástandinu sem faraldur veirunnar veldur.
Við hvetjum íbúa Dalabyggðar til að skola vel grænmeti og ávexti sem keypt er.
Almennur opnunartími Kjörbúðarinnar í Búðardal er:
Mánudag – fimmtudag 9 – 18
Föstudag 9 – 19
Laugardag 10 – 18
Sunnudag 12 – 17.