Lagning ljósleiðara í Búðardal á vegum Mílu

DalabyggðFréttir

Míla tilkynnti um áætlaðar framkvæmdir í Búðardal í febrúar sl.: Áætlaðar framkvæmdir Mílu

VV Verk mun koma í ágúst nk. að leggja ljósleiðara fyrir Mílu skv. meðfylgjandi yfirlitsmynd hér að ofan. Mest er um skurðavinnu að ræða og sjást áætlaðir skurðir á myndinni sem rauð brotalína.

Við hvetjum húseigendur þeirra fasteigna sem eru á listanum hér fyrir neðan til að senda nafn, heimilisfang og símanúmer með tōlvupósti á netfangið: vv@vvverk.is sem fyrst.

VV Verk eru með húsnæði frá 19. – 30. ágúst sem er ekki nægjanlegur tími til að klára verkið. Þeir eru því að leita eftir að leigja húsnæði fyrir 6 menn frá 8. – 18. ágúst. Upplýsingar um mögulegt húsnæði til leigu á þeim tíma má einnig senda á netfangið eða hafa samband við tengilið.

Tengiliður á staðnum verðu Sólon Ingason, sími: 772-1208
Póstfang VV Verks er vv@vvverk.is

Þeir sem hafa áhuga á að samnýta framkvæmdir á þessu svæði er bent á að hafa samband við Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is til að fá nánari upplýsingar um framkvæmdina.

Míla svara einnig spurningum varðandi tengingarmöguleika, tækniupplýsingar, framhald framkvæmda o.s.frv.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei