Landsskipulagsstefna 2015-2026

DalabyggðFréttir

Skipulagsstofnun hefur auglýst tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Í tillögunni er sett fram stefna um: skipulag á miðhálendi Íslands, skipulag í dreifbýli, búsetumynstur og dreifingu byggðar og skipulag á haf- og strandsvæðum.
Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, ásamt fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, er aðgengileg hér á vefnum og á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulagsstofnun.is. Gögnin liggja jafnframt frammi til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.
Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun er til 13. febrúar 2015. Þeim skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is eða um athugasemdagátt á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei