Latíntónlist, saltfiskur og sveifludjass

DalabyggðFréttir

Tómas R. Einarsson og Gunnar Gunnarsson verða með tónleika á Hótel Eddu að Laugum í Sælingsdal, miðvikudaginn 24. júlí kl. 21.
Á tónleikunum munu þeir félagar leika fjölbreytta tónlist úr smiðju sinni, þ.á.m. latíntónlist og sveifludjass.
Tómas R. er matgæðingur mikill og ljær matreiðslumeistara hótelsins uppskrift að kúbverskum saltfiskrétti sem tónleikagestir geta gætt sér á meðan á tónleikunum stendur. Einnig verður boðið upp á Dalaosta.

Salurinn verður opnaður kl. 20. Aðgangur er ókeypis að tónleikunum.

Hótel Edda Laugum í Sælingsdal

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei