Laxdæluhátíð á Laugum

DalabyggðFréttir

Laugardaginn 7. september býður Guðrún Ósvífursdóttir til veislu heima að Laugum í Sælingsdal. Þessi hátíð er árangurinn af samstarfi heimamanna í Dölum og þriggja norrænna leikhúsa um Laxdælasögu.

Um morguninn verður farið um Laxdæluslóðir. Eftir hádegi verður boðið upp á tvær norrænar leiksýningar, íslenska og finnska.
Þá verður blásið til spurningakeppni, Dalakonur af tveimur kynslóðum tala um söguna frá eigin brjósti og heimamenn syngja.
Um kvöldið verður kvöldverðarboð að hætti Guðrúnar og harmonikkuball fyrir unga sem aldna. Dagskráin er fyrir börn eldri en 10 ára og fullorðna.
Dagskráin verður auglýst nánar þegar nær dregur.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei