Leikjanámskeið sumarið 2020

DalabyggðFréttir

Leikjanáskeiðið í ár hefst mánudaginn 8.júní og líkur 25.júní.

Námskeiðið er frá mánudegi til fimmtudags frá 13:00 – 16:00 og skulu krakkarnir taka með sér nesti fyrir 1 nestistíma. Það er 1 frídagur á þessu tímabili og er það miðvikudagurinn 17. Júní.

Leiðbeinendur í ár eru Soffía Meldal Kristjánsdóttir og Sara Björk Karlsdóttir.

Við ætlum að stækka námskeiðið í ár og vera með 2 hópa.

1.-4. bekkur verða saman eins og vanalega.

5.-6. bekkur koma ný inn og verða með í sumar. Þessi aldur hefur verið útundan seinustu ár varðandi afþreyingu á sumrinn. Við viljum koma til móts við það og hafa skemmtilega dagskrá fyrir þau líka

Verð á barn er 10.000kr.-

Skráning hjá:

Jón Egill Jónsson

867-5604

udn@udn.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei