Lóa – nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

DalabyggðFréttir

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Umsóknarfrestur er til 9. mars 2021.

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra.

Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Heildarfjárhæð styrkja árið 2021 er 100 milljónir króna, en hámarksstyrkur til hvers verkefnis er 20 milljónir króna og er úthlutað til árs í senn.
Ráðherra mun skipa matshóp sem fer yfir styrkhæfi umsókna í samræmi við nýsköpunarstefnu og áherslur stjórnvalda. Hópurinn gerir tillögur til ráðherra um veitingu styrkja.

Umsóknum er skilað rafrænt á eyðublaðavef stjórnarráðsins.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei