Mannát, dauði og djöfull

DalabyggðFréttir

Síðustu tvö ár hafa verið haldnar vinsælar og vel sóttar þjóðtrúarkvöldvökur í Sauðfjársetrinu á Sævangi og nú er fyrirhugað að halda slíka í þriðja sinn. Yfirskrift þjóðtrúarkvöldvökunnar er heldur hrikalegt: Mannát, dauði og djöfull.
Því má telja víst að fjallað verði um heldur óhugnanleg atriði í íslenskri þjóðtrú og þjóðsögum á gamansaman hátt að þessu sinni. Það er Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðinemi við HÍ sem heldur utan um kvöldvökuna og að venju verður á boðstólum yfirnáttúrulegt kvöldkaffi með margvíslegum kræsingum og tónlistaratriði.
Skemmtunin hefst kl. 20:30 föstudagskvöldið 11. september. Verð fyrir kvöldvöku og kaffi er 1.500.-
Þau sem flytja erindi á kvöldvökunni eru:
Dagrún Ósk Jónsdóttir, þjóðfræðinemi: Mannát á Íslandi
Björk Bjarnadóttir, umhverfis- og þjóðfræðingur: „Skrattinn fór að skapa mann …“
Jón Jónsson, þjóðfræðingur: Þjóðtrú tengd dauðanum.
Frítt verður inn á sýningar safnsins í tilefni dagsins, fyrir þá sem vilja skoða þær sýningar sem eru uppi í Sævangi um þessar mundir:
Sauðfé í sögu þjóðar (fastasýning Sauðfjársetursins)
Brynjólfur Sæmundsson og störf héraðsráðunauta
Manstu? Ljósmyndir Tryggva Samúelssonar
Álagablettir
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei