Með glimmer á rassinum

DalabyggðFréttir

Þriðjudagskvöldið 18. febrúar kl. 20:30 verður fræðslukvöld fyrir foreldra í Hjálmakletti, sal Menntaskóla Borgarfjarðar.
Eftirtaldir aðilar verða með erindi, deila þekkingu sinni og svara spurningum foreldra.

MEÐ GLIMMER Á RASSINUM

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri og handritshöfundur stuttmyndarinnar „Fáðu já“ deilir reynslu sinni af því að spjalla við þúsundir unglinga um klám, kynlíf, ofbeldi og internetið – og hvers vegna það skiptir máli að ræða þessi mál opinskátt.

RAFRÆNT UPPELDI

Sólveig Karlsdóttir frá SAFT (samfélag, fjölskylda og tækni) ræðir um notkun barna og unglinga á Samfélagsmiðlum og Interneti. Til umfjöllunar verður m.a. siðferði á netinu, rafrænt einelti, haturstal, netboðorðin, friðhelgi einkalífsins, nettæling og netfíkn. Hvernig geta foreldrar brugðist við?

NEYSLA UNGLINGA Á ÁFENGI OG ÖÐRUM VÍMUEFNUM

Lögreglan mætir með fíkniefnahundinn Nökkva og sýnishorn af neyslutólum og kynnir stöðuna í rannsóknum fíkniefnamála og hvernig má merkja vísbendingar um fíkniefnanotkun.
Allir eru velkomnir
Samstarfshópur um forvarnir í Borgarbyggð.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei