Menningardagskrá – síðasti skráningardagur

DalabyggðFréttir

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og Markaðsstofa Vesturlands minna á að skráning í Menningardagskrá á Vesturlandi lýkur í dag, miðvikudaginn 10. júní. Eru allir sem hafa hug á að standa fyrir menningardagskrá í sumar hvattir til að skrá sín verkefni til leiks á þessari slóð: Skráning á menningardagskrá

Menningardagskrá á Vesturlandi er samstarfsverkefni SSV og Markaðsstofu Vesturlands sem skuldbinda sig til að kynna menningarviðburði á miðlum sínum og tengslaneti. Þá er fjárhagsstyrkur að hámarki 500.000kr.- í boði, uppfylli aðilar þau skilyrði að verkefnið efli ferðaþjónustu á Vesturlandi og/eða sé stuðningur fyrir listafólk í landshlutanum. Leitað er eftir tveimur áherslum, það eru „fastir liðir“ sem eru reglulegir viðburðir í allt sumar og svo „krydd í tilveruna“ sem eru einskiptisviðburðir eins og t.d. tónleikar eða hátíðir. Tímabil verkefnisins er frá 15. júní til 15. september.

Nánari upplýsingar gefur Sigursteinn Sigurðsson menningarfulltrúi Vesturlands á netfangið: sigursteinn@ssv.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei