Ólafsdalshátíð 2021 aflýst

DalabyggðFréttir

Þrettándu Ólafsdalshátíðinni sem vera átti laugardaginn 14. ágúst er hér með aflýst vegna COVID fjöldatakmarkana.

Áfram verður þó opið í Ólafsdal kl. 12-17 alla daga fram til 15. ágúst. Sýningar, leiðsögn, kaffi, rjómavöfflur, Erpsstaðaís, góðar gönguleiðir og fornminjar.

Mikill kraftur hefur verið í framkvæmdum Minjaverndar á staðnum að undanförnu. Þannig standa nú fimm byggingar í Ólafsdal þar sem skólahúsið var eitt fyrir þremur árum.

Fimm fornleifafræðingar frá Fornleifastofnun Íslands eru nú við rannsóknir á minjasvæðinu, undir forystu Hildar Gestsdóttur, þar sem landnámsskáli og aðrar fornar byggingar fundust árið 2017. Gestum er velkomið að ganga að minjasvæðinu sem er 1,2 km frá skólahúsinu (15-20 mín ganga). Þeir eru þó beðnir um að trufla ekki fornleifafræðingana sem hafa skamman tíma til rannsókna þetta árið. Góðar upplýsingar eru um fornleifauppgröftinn inni í skólahúsinu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei