Ólafsdalshátíð

DalabyggðFréttir

Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin laugardaginn 11. ágúst. Ókeypis aðgangur er á hátíðina en gestir hvattir til að kaupa miða í Ólafsdalshappdrættinu.

Dagskrá

Gönguferð að víkingaaldarskálanum í Ólafsdal og öðrum minjum. Leiðsögumaður: Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur. Mæting er kl. 10:45 og gangan hefst kl. 11.

Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst kl.12:00. Miðaverð er 500 kr.

Ólafsdalsmarkaður og sýningar í skólahúsinu hefjast kl. 12. Meðal annars á boðstólum lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti, Erpsstaðaís og kræklingur frá Nesskel. Fjölbreyttur matar- og handverksmarkaður. Fastasýning á fyrstu hæð er Ólafsdalsskólinn 1880-1907 og á annarri hæð er sýningin Konurnar í Ólafsdal, auk þess sem sýnt er fræðslumyndband um Ólafsdal.

Hátíðardagskrá hefst kl. 13. Ávörp flytja Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti Dalabyggðar og  Auður Axelsdóttir forstöðukona Hugarafls og afkomandi Torfa og Guðlaugar í Ólafsdal. Erindi flytja Bjarni Guðmundsson prófessor og fræðimaður á Hvanneyri um súrheysgerð Torfa í Ólafsdal og Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur um víkingaaldarminjar í Ólafsdal . Þá koma fram Snorri Helgason söngvari og lagahöfundur, Frímann (Gunnar Hansson leikari) og trúðurinn Willy frá Sirkus Íslands skemmtir börnum á öllum aldri. Kynnir verður Bjarni Guðmundsson.

Dregið verður í Ólafsdalshappdrættinu kl. 16:30.

Hestar verða teymdir undir börnum og kvenfélagið Assa verður með veitingar á sanngjörnu verði.

Rétt er að benda gestum á að netsamband er stopult í Ólafsdal og því ráðlagt að hafa með sér lausafé til að versla og taka þátt í happdrætti.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei