Opinn tími hjá Idu dýralækni

DalabyggðFréttir

Ida B. Rognsvaag dýralæknir hefur opið á stofunni að Ægisbraut 19 (í bílskúrnum), þriðjudaginn 1. desember nk. frá kl. 15:00 – 17:00.
Gæludýraeigendur geta komið við með hunda og ketti til að fá útgefið ormahreinsunarvottorð. Einnig verður boðið upp á örmerkingar og bólusetningar ef þess þarf.

Eigendum hunda og katta ber að skrá dýr sín hjá skrifstofu sveitarfélagsins. Framvísa þarf vottorði um ormahreinsun hunda og katta við skráningu.
Skráning gæludýra er m.a. til þess að sveitarfélagið geti haft dýrið með í hópvátryggingu fyrir leyfða hunda og ketti.

Hundar og ketti í dreifbýli eru undanþegnir skráningar- og árgjaldi, en skylt er að framvísa til sveitarfélagsins númeri örmerkingar svo og árlegu vottorði um ormahreinsun.

Hundar og kettir sem ekki eru einstaklingsmerkt í samræmi við lög, teljast vera hálfvillt dýr. Komi til handsömunar á slíkum dýrum er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa honum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta.
Skráning er því besti kosturinn fyrir bæði dýr og eigendur.

Við viljum hvetja íbúa til að vera ábyrgir gæludýraeigendur.
Skráning tekur aðeins um 5 mínútur á skrifstofu sveitarfélagsins en einnig er hægt að prenta sjálf og fylla út viðeigandi eyðublað og skila ásamt fylgigögnum, sjá hér: Dýrahald

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei