Ormahreinsun katta

DalabyggðFréttir

Eiganda eða umráðamanni kattar er skylt að láta ormahreinsa kött sinn árlega og ber hann allan kostnað af hreinsun hans, nema að annað komi fram í samþykkt hlutaðeigandi sveitarfélags. Skylt er að ormahreinsa alla ketti fjögurra mánaða og eldri.

Ef ekki er kveðið á um annað í samþykkt viðkomandi sveitarfélags skal eigandi eða umráðamaður kattar geyma hreinsunarvottorð í þrjú ár og framvísa því við eftirlitsaðila ef óskað er. [58. gr. reglugerðar nr. 941/2002].

Dalabyggð hefur ekki sett samþykkt um kattahald.

Eigendum katta er bent á að hafa samband við Gísla dýralækni varðandi ormahreinsun.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei