Örvunarskammtar vegna COVID-19  –  bólusett með Pfizer bóluefni

DalabyggðFréttir

Boðið verður upp á örvunarbólusetningu fyrir fólk frá 16 ára aldri, að því gefnu að u.þ.b. 6 mánuðir séu liðnir frá seinni skammti af grunnbólusetningu og 2 vikur liðnar frá Inflúensubólusetningu, hafi fólk fengið hana.  Dagsetningar fyrri bólusetninga má finna á heilsuvera.is

Þau sem eru óbólusett eða hálfbólusett 12 ára og eldri eru velkomin.

Athugið að það þarf að skrá sig í bólusetninguna í síma 432 1450 eða með því að senda skilaboð á heilsuvera.is

Gert er ráð fyrir að bólusett verði flesta fimmtudaga á næstu vikum.

Minnum á að grímuskylda er á bólusetningarstað.

– Heilsugæslustöðin Búðardal

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei