Fréttir.

Aðalmynd fyrir “DalaAuður – munum fundinn á miðvikudaginn!”
06.10.2025

DalaAuður – munum fundinn á miðvikudaginn!

Kæru íbúar. Nú er komið að þessum árlega tímapunkti, þar sem við komum saman undir hatti DalaAuðs og spáum í spilin. Þetta er tækifæri fyrir okkur að staldra við og skoða verkefnið, hvað hefur gengið vel og hvað væri gott að gera í framtíðinni. Þetta er tækifæri fyrir okkur að móta áfram sameiginlega sýn fyrir samfélagið okkar. Fundurinn er haldinn
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Íbúafundur um mögulega sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra”
03.10.2025

Íbúafundur um mögulega sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra

Dalabyggð og Húnaþing vestra hafa undanfarin misseri átt í viðræðum um sameiningu. Samstarfsnefnd um sameiningu sveitarfélaganna vinnur að áliti um tillögu um sameiningu sem íbúar kjósa um 28. nóvember – 13. desember nk. Samstarfsnefnd um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra boðar hér til íbúafunda, sá fyrri í þessari umferð í Dalabúð þann 14. október kl. 17:00-19:00 og sá seinni í
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Bergþóra Jónsdóttir lætur af störfum”
01.10.2025

Bergþóra Jónsdóttir lætur af störfum

Í gær, þriðjudaginn 30. september var haldið kveðjuhóf í Auðarskóla að lokinni kennslu til heiðurs Bergþóru Jónsdóttur. Bergþóra lýkur nú störfum eftir 37 ára gæfuríkan starfsferil í skólanum okkar. Guðmundur Kári Þorgrímsson starfandi skólastjóri, hélt tölu í tilefni þessa og Björn Bjarki Þorsteinsson færði Bergþóru þakklætisvott frá Dalabyggð. Bergþóra hefur sinnt óeigingjörnu starfi m.a. við kennslu og sérkennslu hjá Auðarskóla.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Barnasýningar í stjórnsýsluhúsinu”
30.09.2025

Barnasýningar í stjórnsýsluhúsinu

Byggðasafn Dalamanna og Héraðsbókasafn Dalasýslu eru með sýningu á leikföngum og fleiru á bókasafninu í tilefni af barnamenningarhátíðinni BARNÓ – BEST MEST VEST á Vesturlandi. Leikföngin eru hluti af safnkosti byggðasafnsins. Þau eru frá mismunandi tímum, bæði aðkeypt og heimagerð. Þá eru ekki alveg nýjustu Andrésar andar blöðin frammi til lestrar, dönskukunnátta er kostur. Taflborð er framan við bókasafnið fyrir
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Skrifstofa sýslumanns lokuð 2. október”
25.09.2025

Skrifstofa sýslumanns lokuð 2. október

Skrifstofa sýslumanns í Búðardal verður lokuð fimmtudaginn 2. október. Næsti opnunardagur er þriðjudagurinn 7. október.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Skrifstofa Dalabyggðar lokuð fimmtudaginn 2. október n.k.”
25.09.2025

Skrifstofa Dalabyggðar lokuð fimmtudaginn 2. október n.k.

Til upplýsinga þá verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð fimmtudaginn 2. október n.k. Starfsfólk
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tilkynning frá KM þjónustunni ehf.”
19.09.2025

Tilkynning frá KM þjónustunni ehf.

Góðan dag kæru viðskiptavinir KM þjónustunnar. Vegna mjög erfiðrar rekstrarstöðu mun KM þjónustan loka verslun sinni um mánaðamótin september/október. Allt hefur verið reynt til að bæta rekstur og ekki tekist, þar með er ég nauðbeygður til þessa. Ég mun fara að vinna hjá Katarínusi þannig að ég mun geta afgreitt út meðan eitthvað er til. Ef það er eitthvað sem
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Íþróttavika Evrópu 2025 – Dagskrá á sambandssvæði UDN”
17.09.2025

Íþróttavika Evrópu 2025 – Dagskrá á sambandssvæði UDN

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið til verkefna sem munu tengjast vikunni. Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. UDN (Ungmennasamband
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Nýjar bækur og taupokar að gjöf”
17.09.2025

Nýjar bækur og taupokar að gjöf

Nú er haustið komið, skólinn byrjaður á fullu og fullt af nýjum bókum fyrir börn á bókasafninu. Hvetjum foreldra og forráðamenn einnig til að vera fyrirmyndir í lestri og kíkja á úrvalið. Róleg stund á bókasafninu er ókeypis og góð samvera.  Þá barst Héraðsbókasafni Dalasýslu gjöf á dögunum. Þær Daníella og Anna frá Fellsenda komu færandi hendi og gáfu bókasafninu
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rotþróahreinsun 2025 kláruð í næstu viku”
17.09.2025

Rotþróahreinsun 2025 kláruð í næstu viku

Í Dalabyggð eru rotþrær hreinsaðar á þriggja ára fresti. Í ár, 2025, er hreinsað í Hvammssveit, Fellsströnd og Skógarströnd og hófst verkið í júlí sl. Áætlað er að verkinu ljúki í næstu viku (22.-26. júlí). Því þarf að hafa samband við skrifstofu Dalabyggðar með ábendingar varðandi rotþróahreinsun, sem fyrst. Kostnaður við rotþróahreinsun er innheimtur með fasteignagjöldum. Dalabyggð vill brýna fyrir fólki
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Heitavatnslaust í hluta Búðardals”
16.09.2025

Heitavatnslaust í hluta Búðardals

Heitavatnslaust verður í hluta Búðardals þann 16.9.2025 frá kl 14:00 til kl 15:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof    
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viðvera menningarfulltrúa – fellur niður”
16.09.2025

Viðvera menningarfulltrúa – fellur niður

Því miður fellur niður auglýst viðvera Sigursteins menningarfulltrúa í Búðardal í dag, 16. september. Bent er á að bóka samtal með því að senda honum tölvupóst á sigursteinn@ssv.is eða í síma 433-2310.
Skoða betur
Fréttir.