Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Skrifstofa Dalabyggðar lokuð föstudaginn 19. september”
16.09.2025

Skrifstofa Dalabyggðar lokuð föstudaginn 19. september

Til upplýsinga þá verður skrifstofa Dalabyggðar lokuð föstudaginn 19. september. Vonum að það valdi ekki óþægindum – opnum aftur mánudaginn 22.september. Sveitarstjóri
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sveitarstjórn Dalabyggðar – 259. fundur”
09.09.2025

Sveitarstjórn Dalabyggðar – 259. fundur

FUNDARBOÐ 259. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 11. september 2025 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2508017 – Fjárhagsáætlun 2025- Viðauki IV (4) 2. 2409018 – Samþykkt um gæludýrahald í Dalabyggð 3. 2405012 – Farsældarráð Vesturlands Fundargerð 4. 2508001F – Byggðarráð Dalabyggðar – 339 Fundargerðir til kynningar 5. 2506005F – Atvinnumálanefnd Dalabyggðar –
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Malbikun þjóðvegar við Búðardal”
08.09.2025

Malbikun þjóðvegar við Búðardal

Þriðjudaginn 9. september frá kl 08:30 – 21:00 á að malbika Vestfjarðarveg (60) um Búðardal. Vegurinn verður þrengdur í eina akrein og umferðarstýring sett á. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi. Vestfjarðarvegur verður malbikaður frá Sunnubraut norður fyrir gatnamót Hjarðarholtsvegar annars vegar og frá Brekkuhvammi suður fyrir gatnamót hesthúsaafleggjara hins vegar.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Réttir og fjallskil í Dalabyggð 2025”
04.09.2025

Réttir og fjallskil í Dalabyggð 2025

Meðfylgjandi er yfirlit yfir lögréttir í Dalabyggð haustið 2025. Fjallskilaseðla má skoða hér fyrir neðan utan Skógarstrandar sem skipta með sér verkum án útreiknings. Búið er að senda fjallskilaseðla til fjáreiganda í tölvupósti. Ef að fjallskilaseðlar hafa ekki borist, má hafa samband við skrifstofu Dalabyggðar á dalir@dalir.is eða síma 430-4700 Sé óskað eftir útprentuðum fjallskilaseðil má hafa samband við skrifstofu
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Upplýsingavefur um sameiningarviðræður opnaður”
04.09.2025

Upplýsingavefur um sameiningarviðræður opnaður

Í dag fór upplýsingavefur samstarfsnefndar um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra í loftið á léninu  https://dalhun.is Á honum er að finna ýmsar upplýsingar um sameiningarviðræðurnar og íbúakosningar um sameiningartillöguna, auk frétta af viðræðum og viðburðum. Á síðunni er einnig að finna svör við spurningum sem algengt er að íbúar velti upp í tengslum við sameiningarviðræður og eyðublað fyrir nýjar fyrirspurnir
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Útivistarreglur barna. Foreldrar verum samtaka!”
01.09.2025

Útivistarreglur barna. Foreldrar verum samtaka!

Frá 1.september breyttust útivistatími barna. Þessar breytingar eru í gildi til 1.maí 2026. Börn 12 ára og yngri mega ekki vera úti eftir klukkan 20:00. Ungmenni á aldrinum 13-16 ára mega ekki vera úti eftir klukkan 22:00. Foreldrum er heimilt að stytta þennan tíma en ekki lengja. Aldur er miðaður við fæðingarár. Áætluð svefnþörf barna og ungmenna í grunnskóla eru
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Vinnustofa um framtíðarsýn á Borðeyri”
29.08.2025

Vinnustofa um framtíðarsýn á Borðeyri

Þriðjudaginn 26. ágúst sl. var haldin vinnustofa á Borðeyri í tengslum við sameiningarviðræður Dalabyggðar og Húnaþings vestra. Þátttakendur voru lykilstarfsmenn sveitarfélaganna á þeim sviðum sem fjallað var um, kjörnir fulltrúar og fulltrúar úr fastanefndum. Markmiðið með vinnustofunni var að leiða saman þá sem best þekkja til mála til að móta framtíðarsýn og draga fram kosti og ókosti sameiningar fyrir íbúana.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Ómetanleg þátttaka íbúa”
29.08.2025

Ómetanleg þátttaka íbúa

Síðast liðin 2 ár hefur verið í gangi verkefnið „Dalabyggð í sókn – ímynd, aðdráttarafl og staðarandi“ sem hlaut styrk af C.1. lið Byggðaáætlunar. Ástæða verkefnisins var vinna með ímynd Dalanna, hún var ekki slæm en hún var heldur ekki sterk. Þannig hefur verkefnið snúið að efnissköpun til miðlunar, fyrir ferðamenn, fyrir núverandi og tilvonandi íbúa, sem og mögulega fjárfesta
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Uppfærð tilkynning frá Rarik vegna hitaveitureikninga”
28.08.2025

Uppfærð tilkynning frá Rarik vegna hitaveitureikninga

Því miður þá nær Rarik ekki að leiðrétta mögulega tæknilega villu í gögnum og útgáfu hitaveitu reikninga Rarik á gjalddaga 01.09.2025. Áfram verður unnið að greiningu gagna til að tryggja rétta útgáfu á hitaveitu reikningi í október 2025 Ef viðskiptavinur Rarik telur að um verulega breytingu á gjalddaga sínum 01.09.2025  sé að ræða, er mikilvægt að upplýsa Rarik með álestri
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Skrifstofa sýslumanns lokuð 28.08.2025”
26.08.2025

Skrifstofa sýslumanns lokuð 28.08.2025

Skrifstofa sýslumanns í Búðardal verður lokuð fimmtudaginn 28. ágúst nk.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Brattabrekka lokuð 27. og 28. ágúst”
26.08.2025

Brattabrekka lokuð 27. og 28. ágúst

Vegurinn yfir Bröttubrekku verður lokaður milli kl. 8:00 – 20:00 miðvikudag, 27. ágúst og fimmtudaginn 28. ágúst vegna malbikunarframkvæmda. Lokað verður frá Hringvegi í Norðurárdal að Snæfellsnesvegi. Hjáleiðir verða um Heydal og Laxárdalsheiði. Viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eiga sér nú stað um allt land. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Skólaþing 28. ágúst – foreldrar hvattir til þátttöku”
26.08.2025

Skólaþing 28. ágúst – foreldrar hvattir til þátttöku

Skólaþing fer fram í Dalabúð, fimmtudaginn 28. ágúst nk. og hefst kl.17:30 Unnið verður í anda íbúarþings. Kristrún Birgisdóttir frá skólaþjónustu Ásgarðs er fundarstjóri og flytur framsöguerindi. Foreldrar eru hvattir til að mæta á þingið og taka þátt í samtalinu. Saman getum við unnið að góðu skólaumhverfi fyrir börnin okkar.
Skoða betur
Fréttir.