Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Auglýst eftir fjárfestum – Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal”
23.01.2025

Auglýst eftir fjárfestum – Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Búðardal

Fjárfestingafélagið Hvammur ehf. í samstarfi við Byggðastofnun og sveitarfélagið Dalabyggð leitar eftir fjárfestum vegna byggingar atvinnuhúsnæðis í Búðardal. Byggðastofnun og Dalabyggð hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis að Byggðastofnun muni leggja til fjármagn í verkefnið, allt að 150 milljónir króna, og Dalabyggð muni leggja til lóð, teikningar, gatnagerð og lagnir að lóð þar sem atvinnuhúsnæði mun rísa. Um er að ræða
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Íþróttamiðstöðin rís úr jörðu”
21.01.2025

Íþróttamiðstöðin rís úr jörðu

Framkvæmdir í grunni nýrrar íþróttamiðstöðvar ganga vel. Uppsteypa á kjallara er langt komin og unnið að steypu á undirstöðum íþróttasals og þjónustubyggingar. Ekkert lát verður á framkvæmdum meðan veður leyfir, en nú er snjólétt og frost milt sem kemur sér vel. Límtré í burðarvirki er í framleiðslu í Lettlandi og er væntanlegt ásamt útveggjaeiningum og tilheyrandi í mars. Það þarf
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Níu verkefni hljóta styrk úr Menningarmálaverkefnasjóði”
16.01.2025

Níu verkefni hljóta styrk úr Menningarmálaverkefnasjóði

Á fundi menningarmálanefndar í gær, 15. janúar voru teknar fyrir umsóknir sem bárust í Menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar fyrir árið 2025. Samkvæmt úthlutunarreglum sjóðsins skal úthlutunin fara fram fyrir þann 1. febrúar ár hvert. Auglýst var eftir umsóknum 10. desember 2024 til og með 10. janúar 2025. Í þetta sinn bárust 14 umsóknir, til úthlutunar voru 1.000.000 kr.- 9 verkefni hljóta styrk
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Árskort á bókasafnið er ókeypis afþreying – viðbætur við safnkost og áframhald örsýninga”
08.01.2025

Árskort á bókasafnið er ókeypis afþreying – viðbætur við safnkost og áframhald örsýninga

Í upphafi árs er rétt að vekja athygli á því að árskort á Héraðsbókasafn Dalasýslu fyrir 1. janúar – 31. desember 2025 er íbúum gjaldfrjálst.  Þannig gefur árskortið íbúum möguleika á fjölbreyttri, takmarkalausri og ókeypis afþreyingu. Svo ekki sé minnst á kosti þess að lesa, bæði fyrir unga sem eldri. Safnið býr yfir glæsilegum safnkosti sem telur nær 14.000 eintök
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kallað eftir reikningum vegna 2024 – frestur til 15. janúar”
07.01.2025

Kallað eftir reikningum vegna 2024 – frestur til 15. janúar

Dalabyggð hefur hafið vinnu við uppgjör vegna ársins 2024. Þar sem frágangur bókhalds þarf að vera klár í byrjun febrúar köllum við nú eftir öllum þeim reikningum sem eiga eftir að koma í hús vegna 2024. Innskráningu reikninga fyrir árið 2024 verður lokað miðvikudaginn 15. janúar n.k. og því þurfa allir reikningar að berast fyrir þann dag.  – Skrifstofa Dalabyggðar
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viljayfirlýsing um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis undirrituð”
03.01.2025

Viljayfirlýsing um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis undirrituð

Sveitarfélagið Dalabyggð og Byggðastofnun hafa gert með sér viljayfirlýsingu um uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í Búðardal. Um er að ræða tilraunaverkefni af hálfu Byggðastofnunar þar sem markmiðið er að reisa atvinnuhúsnæði á stað þar sem vöntun á fjárfestingu í atvinnuhúsnæði hefur hamlað framþróun og mun stofnunin leggja til allt að 150 m.kr. í verkefnið. Sveitarfélagið mun tryggja lóð vegna þeirrar uppbyggingar sem
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sorphirðudagatal 2025”
03.01.2025

Sorphirðudagatal 2025

Dagatal fyrir sorphirðu í Dalabyggð 2025. Dalabyggð_sorphirða 2025 Hægt er að nálgast útprentað eintak í móttöku Dalabyggðar á opnunartíma skrifstofu. Alltaf er hægt að kynna sér gildandi fyrirkomulag sorphirðu hér á heimasíðunni. Efst á þeirri síðu er dagatal ársins.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sérstakur húsnæðisstuðningur ungmenna 15 – 17 ára”
02.01.2025

Sérstakur húsnæðisstuðningur ungmenna 15 – 17 ára

Ungmenni 15-17 ára sem eru í framhaldsskólum eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi. Stuðningurinn er ætlaður foreldrum/forsjáraðilum ungmenna sem leigja herbergi á heimavist, á námsgörðum, eða leiguherbergi á almennum markaði og njóta ekki réttar til húsnæðisbóta vegna aldurs. Samkvæmt reglum skal umsókn berast fyrir 15. þess mánaðar sem greitt er fyrir og ekki greitt aftur í tímann. Umsókn gildir fyrir hverja
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar”
02.01.2025

Opið fyrir umsóknir í menningarmálaverkefnasjóð Dalabyggðar

Menningarmálanefnd Dalabyggðar auglýsir eftir umsóknum í menningarmálaverkefnasjóð. Til úthlutunar 2026 verða 1.000.000 kr.- Hlutverk sjóðsins er að styðja við menningarmál í Dalabyggð og er það gert með því að veita styrki eftir því sem menningarmálanefnd Dalabyggðar telur þjóna markmiðum sjóðsins. Umsækjendur í sjóðinn geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir með lögheimili í Dalabyggð. Umsóknarfrestur er til og með 12.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Breyttur opnunartími skrifstofu Dalabyggðar 2025”
01.01.2025

Breyttur opnunartími skrifstofu Dalabyggðar 2025

Vegna styttingu vinnuviku verður opnunartíma skrifstofu Dalabyggðar breytt frá og með 1. janúar 2025. Opnunartími skrifstofu Dalabyggðar verður eftirfarandi:  10:00 – 13:00 á mánudögum 09:00 – 13:00 þriðjudaga – fimmtudaga 09:00 – 12:00 á föstudögum Við bendum á að alltaf er hægt að senda póst á dalir@dalir.is og verður erindum svarað svo fljótt sem auðið er.  Einnig má finna netföng
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Frumkvæðissjóður DalaAuðs – opið fyrir umsóknir til 20. janúar”
30.12.2024

Frumkvæðissjóður DalaAuðs – opið fyrir umsóknir til 20. janúar

Opið er fyrir umsóknir í Frumkvæðissjóð DalaAuðs og hægt verður að senda inn umsóknir til hádegis 20. janúar 2025. Ef þú ert með hugmynd að félagsstarfi, menningarviðburði, skemmtilegri nýjung í atvinnulífi eða annarri nýsköpun þá er líklegt að hún eigi erindi. Það er alltaf hægt að hitta verkefnisstjóra og viðra hugmyndir eða fá aðstoð við umsóknir og hvet ég ykkur
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Jólakveðja frá Dalabyggð”
24.12.2024

Jólakveðja frá Dalabyggð

Sveitarstjórn Dalabyggðar og starfsfólk óska íbúum Dalabyggðar gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.
Skoða betur
Fréttir.