Fréttir.

Aðalmynd fyrir “Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenn – haustönn”
03.12.2024

Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenn – haustönn

Sveitarfélagið Dalabyggð mun á nýju ári færa umsókn um frístundastyrk inn í kerfi SportAbler. Þannig mun birtast valmöguleiki fyrir foreldri til að nýta styrkinn þegar barn er skráð á námskeið hjá félögum sem starfa í Dalabyggð eða á tímabundin námskeið sem boðið er upp á í sveitarfélaginu og leyfi hefur fengist fyrir að nýta styrkinn til.  Þar sem innleiðingu er
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kertasníkir jólavættur Dalamanna 2024”
02.12.2024

Kertasníkir jólavættur Dalamanna 2024

Kertasníkir sigraði með 18 atkvæðum í baráttunni um jólavætt Dalamanna 2024. Jólakötturinn fylgdi þar fast á eftir með 16 atkvæði, Faldafeykir með 14 atkvæði, Stúfur með 12 atkvæði og Rjómasleikir með 11 atkvæði. Í boði voru 81 jólavættir og af þeim fengu 18 engin atkvæði. Framkvæmd kosninganna var fremur frjálsleg. Eftir að kom í ljós að kjörstjórn, Jólakötturinn, Grýla og
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Viðveru atvinnuráðgjafa frestað um einn dag”
02.12.2024

Viðveru atvinnuráðgjafa frestað um einn dag

Ólafur Sveinsson atvinnuráðgjafi SSV verður í Dalabyggð miðvikudaginn 4. desember í stað þriðjudagsins eins og plan gerir annars ráð fyrir. Upplýsingar varðandi viðveru ráðgjafa SSV má finna á meðfylgjandi hlekk: Ráðgjafar SSV – Viðvera
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Tillaga að deiliskipulagi Skoravíkur á Fellsströnd”
29.11.2024

Tillaga að deiliskipulagi Skoravíkur á Fellsströnd

Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti 17. október 2024 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Skoravíkur skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til jarðarinnar Skoravíkur í heild sinni. Þar er gert ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúss ásamt gestahúsum og þjónustubyggingum til að hýsa tæki og annað sem tengist starfsemi á jörðinni. Deiliskipulagstillagan er til kynningar í skipulagsgátt á slóðinni www.skipulagsgatt.is/issues/2024/1313 með
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Guðný Erna Bjarnadóttir ráðin Lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar”
29.11.2024

Guðný Erna Bjarnadóttir ráðin Lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar

Dalabyggð hefur ráðið Guðnýju Ernu Bjarnadóttur sem lýðheilsufulltrúa sveitarfélagsins. Guðný Erna hefur undanfarin fimm ár búið og starfað í Noregi, þar sem hún vann við neyðarvistun fyrir ungmenni og neyðarúrræði fyrir fólk með fíknivanda og geðsjúkdóma. Hún hefur einnig starfað sem íþróttafræðingur á Heilsustofnun í Hveragerði og sem sundþjálfari. Guðný Erna er með B.Sc. gráðu í íþrótta- og heilsufræði frá
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Kynning á fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025-2028”
28.11.2024

Kynning á fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025-2028

Þriðjudaginn 3. desember verða haldnir tveir opnir fundir í Nýsköpunarsetrinu (Miðbraut 11 í Búðardal, jarðhæð) til kynningar á fjárhagsáætlun Dalabyggðar til að gefa sem flestum íbúum tækifæri á að mæta. Fyrri fundurinn verður kl. 17:00 og sá seinni kl. 20:00 Dagskrá beggja funda: Fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2025 – 2028 Heitt á könnunni og íbúar hvattir til að mæta.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Jólaaðstoð – umsókn”
27.11.2024

Jólaaðstoð – umsókn

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir vegna jólaaðstoðar, í ár verður boðið upp á bónus kort, vinsamlegast sendið tölvupóst á snaevara@kirkjan.is Til að sækja um þarf að senda tölvupóst með með fjölda heimilismeðlima og aðeins um aðstæður ykkar, fullum trúnaði er heitið. Úthlutun verður 6. desember.  – Snævar prestur
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Forvarnarhópur Dalabyggðar tekinn til starfa”
27.11.2024

Forvarnarhópur Dalabyggðar tekinn til starfa

Líkt og fram kom í frétt þann 20.9.2024 var erindisbréf um stofnun forvarnarhóps Dalabyggðar samþykkt á 249. fundi sveitarstjórnar. Hópinn skipa fulltrúi frá lögreglunni á Vesturlandi, heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE), félagsþjónustu Dalabyggðar, Auðarskóla, auk fulltrúa frá íþrótta- og tómstundastarfi Dalabyggðar. Hópurinn hefur formlega tekið til starfa og er farin af stað vinna við gerð forvarnarstefnu Dalabyggðar fyrir árin 2025 – 2027.
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Rafmagnsleysi vegna vinnu við dreifikerfi”
26.11.2024

Rafmagnsleysi vegna vinnu við dreifikerfi

Rafmagnslaust verður frá Hrappsstöðum að Sólheimum þann 27.11.2024 frá kl 13:00 til kl 16:00 vegna vinnu við dreifikerfið. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 5289000. Kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Sorphirða – staða á dreifingu íláta og hirðingu”
25.11.2024

Sorphirða – staða á dreifingu íláta og hirðingu

Í byrjun nóvembermánaðar fengu heimili í dreifbýli sunnan Búðardals nýja tunnu fyrir plastúrgang og eiga að vera byrjuð að aðgreina plast og pappa/pappír í sitt hvort ílátið. Um síðustu helgi var tunnum fyrir plast dreift á langflest heimili vestan Búðardals. Vinnu við dreifingu á nýjum tunnum verður haldið áfram í vikunni og mun ljúka í Búðardal samhliða hirðingu á grænu
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Uppáhaldsjólavættur Dalamanna 2024”
25.11.2024

Uppáhaldsjólavættur Dalamanna 2024

Byggðasafn Dalamanna og Héraðsskjalasafn Dalasýslu standa fyrir kosningu  um uppáhaldsjólavætt Dalamanna 2024 laugardaginn 30. nóvember kl. 10:00 – 18:00 á jarðhæð stjórnsýsluhússins. Kjörskrá Á kjörskrá eru allir Dalamenn óháð aldri, kyni, búsetu, trúarbrögðum og öðrum duttlungum. Kosningareglur Hver kjósandi má eingöngu kjósa einu sinni Kjósa má allt að þrjá jólavætti Kjósendur mega hafa ritara sér til aðstoðar Áróður á kjörstað
Skoða betur
Aðalmynd fyrir “Alþingiskosningar 2024”
23.11.2024

Alþingiskosningar 2024

Kjörfundur í Dalabyggð vegna Alþingiskosninga verður laugardaginn 30. nóvember 2024 í Stjórnsýsluhúsinu, Miðbraut 11 í Búðardal. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. Óski kjörstjórn þess, ber kjósanda að framvísa persónuskilríkum á kjörstað. Kjósandi á rétt til aðstoðar við atkvæðagreiðsluna. Aðstoð skal veitt af þeim úr kjörstjórn sem kjósandi tilnefnir eða aðstoðarmanni sem fylgir kjósanda á kjörstað. Aðstoðarmaður má
Skoða betur
Fréttir.