14.08.2024Skrifstofa sýslumanns lokuð fimmtudaginn 15. ágúst Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður skrifstofa sýslumanns í Búðardal lokuð fimmtudaginn 15. ágúst.Skoða betur
13.08.2024Sögurölt – Fagradalstunga Sjöunda sögurölt safnanna verður fimmtudaginn 15. ágúst kl. 19 að Fagradalstungu. Fagradalstunga fór í eyði 1946, en er nytjuð frá Fossi. Farið verður frá hlaðinu í Innri-Fagradal stundvíslega kl. 19 og keyrt áleiðis fram dalinn. Öll leiðin er um 2 km eftir götum og vegslóðum og örlítið á fótinn. Vaða þarf yfir Seljadalsá, en vaðið er mjög gott, en vatnsmagnSkoða betur
13.08.2024Sveitarstjórn Dalabyggðar – 248. fundur FUNDARBOÐ 248. fundur Sveitarstjórnar Dalabyggðar verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, fimmtudaginn 15. ágúst 2024 og hefst kl. 16:00 Dagskrá: Almenn mál 1. 2404014 – Forgangsröðun vegaframkvæmda í Dalabyggð 2. 2404009 – Forgangsröðun fjarskiptamála í Dalabyggð 3. 2403007 – Starfshópur um skipulag íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfs í Dalabyggð 2024 4. 2406027 – Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum 5. 2406018 – FjallskilSkoða betur
13.08.2024Breyting á Aðalskipulagi Dalabyggðar 2020-2032 í landi Ljárskóga Byggðaráð Dalabyggðar samþykkti þann 8. ágúst 2024 tillögu að breytingu Aðalskipulags Dalabyggðar 2020-2032, í landi Ljárskóga. Tillagan var auglýst frá 19. júní til 2. ágúst 2024 í skipulagsgátt – https://skipulagsgatt.is/issues/2023/519/process Umsagnir bárust frá Breiðafjarðarnefnd, Náttúrufræðistofnun Íslands, Minjastofnun Íslands, Umhverfisstofnun og Vegagerðinni. Brugðist var við ábendingum í umsögnum Breiðafjarðarnefndar, N.Í. og UST með eftirfarandi breytingum í greinargerð: Í kafla 3 erSkoða betur
12.08.2024Skrifstofa sýslumanns lokuð þriðjudaginn 13. ágúst Skrifstofa sýslumanns í Búðardal verður lokuð þriðjudaginn 13. ágúst.Skoða betur
08.08.2024Uppbyggingarsjóður Vesturlands – Úthlutun september 2024 Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands Úthlutun september 2024 Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Í ÞESSARI ÚTHLUTUN ERU: -Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar Allar upplýsingar umSkoða betur
07.08.2024Kynning á niðurstöðum umhverfismats á vindorkugarði í landi Sólheima Vegna vinnu við umhverfismat vindorkugarðs í landi Sólheima í Dalabyggð verður haldinn kynningarfundur á vegum framkvæmdaaðila (Qair) í Dalabúð, Búðardal, þriðjudaginn 13. ágúst kl. 20:00. Fjallað verður um niðurstöður umhverfismats verkefnisins. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir.Skoða betur
06.08.2024Sögurölt – Bakkadalur Sjötta sögurölt sumarsins verður fimmtudaginn 8. ágúst kl. 19 í Bakkadal í hinum forna Geiradalshreppi. Gengið verður frá Heiðabrekkunum að Tröllatunguheiði fram að Stórafossi í Bakkadalsá. Öll leiðin er um 2 km á jafnsléttu eftir götum og ætti að henta flestum. Til að komast að Tröllatunguheiði er farinn Geiradalsvegur nr. 605 og beygt fram Bakkadal austan Bakkaár. Tvö hlið eruSkoða betur
29.07.2024Sögurölt í Ósdal Sögurölt verður miðvikudaginn 31. júlí kl. 19 frá þjóðveginum eftir vegslóða fram með Ósá (rétt norðan Hólmavíkur) að Svartafljóti. Leiðin er því sem næst á jafnsléttu 2,5 km, fram og til baka. Sögumaður er Jón Jónsson þjóðfræðingur. Söguröltin eru samstarfsverkefni safnanna í Dölum og á Ströndum.Skoða betur
29.07.2024Samningur um umsjón og uppbyggingu Brekkuskógar Föstudaginn 26. júlí sl. var undirritaður samningur á milli Dalabyggðar, Skógræktarfélags Dalasýslu og Skógræktarfélag Íslands um uppbyggingu í og við Brekkuskóg í Búðardal. Markmið samningsins er að stuðla að landvernd og tryggja íbúum Dalabyggðar og gestum svæði til útivistar um ókomna framtíð. Um er að ræða svæði norðvestan við Búðardal, sem nú nefnist Brekkuskógur og var gróðursettur kringum 1990, upphaflegaSkoða betur
23.07.2024Skrifstofa sýslumanns lokuð á fimmtudag Skrifstofa sýslumanns í Búðardal verður lokuð fimmtudaginn 25. júlí. Næsti opnunardagur verður þriðjudaginn 30. júlí.Skoða betur
22.07.2024Sögurölt. Múlarétt, Belgsdalur og Kiðhólsrétt. Fimmtudaginn 25. júlí kl. 19 verður fjórða sögurölt sumarsins í Dölum og á Ströndum, nú í Saurbæ í Dölum. Gengið verður frá Múlarétt að eyðibýlinu Belgsdal og síðan í Kiðhólsrétt. Til að komast að Múlarétt er keyrt að Staðarhólskirkju og farið fram Staðarhólsdal. Eftir að komið er framhjá Þurranesi er beygt til vinstri að Múlabæjum. Keyrt er framhjá Múlabæjum þarSkoða betur