Passíusálmar í Hjarðarholtskirkju

DalabyggðFréttir

Á föstudaginn langa voru Passíusálmar séra Hallgríms Péturssonar lesnir í heild sinni í sjöunda sinn í Hjarðarholtskirkju.
Björn Stefán Guðmundsson, Jóhannes Haukur Hauksson, Íris Björg Guðbjartsdóttir, Sesselja Árnadóttir og Eggert Aðalsteinn Antonsson sáu um lesturinn.
Lesturinn hófst kl. 13:30 og tók rúmar 4 klst. Boðið var upp á kaffi og með því í þjónustuhúsinu. Lesturinn var góður og þess má geta að Björn las sálma í fimmta sinn, en hann hefur þrisvar lesið sálmanna einn, þar af í fyrstu tvö árin.
http://kirkjan.is/dalaprestakall/2010/04/lestur-passiusalma-2/
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei