Reglur um sóttkví í sumarhúsum

DalabyggðFréttir

Að gefnu tilefni er vakin athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.

  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum og þar af leiðandi ekki í matvöruverslanir.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga.
  • Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra en verða skilyrðislaust að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.

Vinnum saman og hindrum frekari útbreiðslu smita.

Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.

Lögreglustjórinn á Vesturlandi og formaður almannvarnanefndar Vesturlands, Úlfar Lúðvíksson.

Nánari upplýsingar um sóttkví og reglur þar um er að finna á www.covid.is eða með því að smella HÉR.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei