Rekstur mötuneytis dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns

DalabyggðFréttir

Dalabyggð óskar eftir tilboðum í rekstur mötuneytis dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns.

Á heimilinu búa 13 íbúar og starfsfólk er einn til sex á hverri vakt. Um er að ræða fimm máltíðir á sólarhring fyrir íbúa og starfsfólk heimilisins alla daga ársins. Einnig eiga eldri borgarar búsettir í Dalabyggð utan heimilisins kost á að koma í hádegismat eða fá heimsendan mat.

Samningstími er 3 ár, með möguleika á að framlengja samninginn um 1 ár.

Í rekstrinum felst:

  • Að matreiða fimm máltíðir á sólarhring fyrir íbúa og starfsfólk heimilisins alla daga ársins (morgunmatur, hádegismatur, miðdegiskaffi, kvöldmatur og kvöldhressing).
  • Að sjá um matarpantanir, eldhús (helsti búnaður er til staðar), búr, uppvask og þrif á starfssvæði.
  • Að ráða og sjá um starfsmannahald tengt mötuneytinu.
  • Gerð matseðils í samráði við hjúkrunarforstjóra.

Frestur til að skila inn tilboði er til 1.september 2020.

Hægt er að nálgast útboðsgögn, frekari upplýsingar og skila inn tilboðum á skrifstofu Dalabyggðar að Miðbraut 11, 370 Búðardal á opnunartíma frá kl.9-13 eða á netfangið silfurtun@dalir.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei