Réttir og fossar í Haukadal

DalabyggðFréttir

Fimmta kvöldganga Byggðasafns Dalamanna verður fimmtudaginn 6. júlí 2017. Skoðaðar verða tvær lögréttir Haukdælinga og nálægir fossar.
Upphaf ferðarinnar er við Kirkjufellsrétt kl. 19 og örganga að Draugafossi. Síðan verður farið á vélknúnum ökutækjum fram að Skarðsrétt. Eitt vað er á leiðinni og skynsamlegt hjá þeim sem eru á minni bifreiðum að sníkja sér far síðasta hlutann.
Genginn verður stuttur hringur um svæðið og Réttarfoss skoðaður. Heldur minna verður gengið í þessari kvöldgöngu, en vonandi þeim mun meiri tími til að segja sögur úr Haukadalnum.
Allir eru velkomnir í kvöldgönguna. Margt er vitlausara hægt að gera á fimmtudagskvöldi en fara í stutta göngu, njóta náttúrunnar, hitta annað fólk, hlusta á sögur og jafnvel segja eina sjálfur.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei