Rúlluplast vikuna 25.-30. janúar

DalabyggðFréttir

Byrjað verður á að safna rúlluplasti í Dalabyggð mánudaginn 25. janúar og fram haldið eftir vikunni þar til því verki verður lokið.
Plastið skal haft á aðgengilegum stað og snyrtilega frágengið fyrir sorpverktaka.

Mikilvægt er að baggabönd og net séu sett sér í glæra plastpoka og vel aðgreinanleg frá rúlluplasti.
Óheimilt er að setja rúlluplast í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins.
Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts skv. lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs og reglugerð nr. 737/2003.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei