Rúllupylsukeppnin

DalabyggðFréttir

Sauðfjársetur á Ströndum og Slow food samtökin á Íslandi halda Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð í Sauðfjársetrinu á Ströndum laugardaginn 23. nóvember kl. 13.
Þetta verður í annað skiptið sem keppnin er haldin. Árið 2012 var keppnin haldin í Króksfjarðarnesi. Þá fengu Strandamennirnir Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsavík, fyrstu verðlaun fyrir léttreykta rúllupylsu.

Rúllupylsuuppskriftir þekkjast úr fornum og nýjum uppskriftarbókum en líklegt er að margar og margvíslegar uppskriftir séu til á heimilum landsmanna hver annarri betri.

Keppnisreglur
• Þátttakendur mega koma með eins margar gerðir rúllupylsa og þeir vilja.
• Þátttakendur bjóða gestum að smakka á rúllupylsunum.
• Dómnefnd valinkunnugra matgæðinga og smakkara mun leggja dóm á lykt, áferð, bragð, framsetningu og frumleika.
• Viðurkenningar verða veittar fyrir þrjú fyrstu sætin og einnig aukaverðlaun fyrir frumleika.

Þeim sem ekki eiga heimangengt með sínar rúllupylsur er bent á að þær má senda á Sauðfjársetrið og starfsmenn þess taka að sér að sjá um framsetningu og kynningu.
Gott er að tilkynna þátttöku hjá Ester í síma: 823 3324 eða á netfangið saudfjarsetur @strandir.is, en ekki þó nauðsynlegt.
Sauðfjársetur á Ströndum er í Sævangi, 12 km. sunnan við Hólmavík.

Rúllupylsukeppnin 2012

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei